Lestrarhefti

 Sumarlestur – verður næst uppfært 1. maí 2016

sumarlestur2015-01Sumarlestur 2015 er skemmtilegt 8 síðna skjal með lestrarsáttmála, dagatali, bónusum, stjörnugjöf og 50 bóka lista sem skólasafnskennarinn Rósa Harðardóttir mælir með. Nú er um að gera að halda lestrinum við í sumar með skemmtilegum hætti og lauma A5 hefti með í einkunnaumslögin. Sumarlestrarheftið er styrkt af Eddu útgáfu, sjá lesskilningsverkefni Disney bókanna.

  • PDF – Sumarlestur í lit
  • PDF – Sumarlestur í svarthvítu

 

Septemberlestur – verður næst uppfært 20. ágúst 2016

Septemberlestur 2015

Septemberlestur inniheldur orðasafna, bókadóm, bókareglur, bókamerki, 30 daga lestrarátaki (mínútur skráðar og/eða lesnar blaðsíður), og bókahillu ásamt gátlista til efla samstarf heimilis og skóla. Bók er best vina segir máltækið og nú er um að gera að koma vetrarlestrinum af stað.

  • PDF – Septemberlestur í lit
  • PDF – Septemberlestur í svarthvítu

 

 

Októberlestur – verður næst uppfært 20. september 2016

oktoberlestur_lit-01

Í októberlestrarheftinu má finna fasta liði eins og bókadóm, 31 daga lestrarátak og orðasafn sem að þessu sinni tengist sagnorðum. Að auki fylgja 2 hurðarhengi til að plasta og nota á herbergishurðina, lestraráskorun #1 og bókaflipi þar sem nemendur leysa verkefni í stílabók. Októberheftið er styrkt af Eddu útgáfu, sjá lesskilningsverkefni Disney bókanna.

  • PDF – Októberlestur í lit
  • PDF – Októberlestur í svarthvítu

 

 

Nóvemberlestur

novemberlestur-01Í nóvemberlestrarheftinu gefur að líta skemmtilegan sögugogg, bókarhlutar eru skoðaðir auk þess sem lýsingarorð eru viðfangsefni orðasafnsins. ABC lestur er skemmtilegt stafrófsverkefni og íslenskir barnabókahöfundar eru kynntir til sögunnar. Nóvemberheftið er styrkt af Evolvia sem er leiðandi fyrirtæki í markþjálfun á Íslandi og hélt nýlega geysigóða ráðstefnu um framúrskarandi skólaumhverfi. Evolvia og Norðlingaskóli eru að fara í spennandi samstarf á næstu misserum sem gaman verður að fylgjast með.

 

Desemberlestur

desemberlestur-01Í desemberlestrarheftinu er meðal annars unnið með lestrartölfræði þar sem nemendur færa inn mismunandi tegundir lesturs (tímarita, dagblaða, teiknimynda o.fl). Skemmtilegt jóladagatal er í boði hljóðbókasíðunnar Hlusta.is en hægt verður að hlusta á 24 fallegar jólasögur á aðventunni auk þess sem nemendur spreyta sig á sögukorti. Heftið kemur út í lok nóvember og það er Jógasetrið sem styrkir að þessu sinni. Jógasetrið er virkilega notalegur staður sem býður upp á vönduð námskeið fyrir fólk á öllum aldri. Þar er hægt að fara í sérstakt Krakkajóga auk þess sem fyrirtækið hefur gefið út jóga á DVD fyrir börn, sjá kynningu. 

Janúarlestur

Það er ekki leiðinlegt að hefja nýtt ár með hressilegu lestrarátaki og í janúarheftinu gefur að líta nýja áskorun þar sem nemendur eru meðal annars hvattir til að lesa smásagnasafn, uppáhalds barnabók foreldris og sögu sem gerist í framtíðinni. Auk þess má finna orðflokkapúsl, söguramma, fleirtölusúpu og verkefni tengt persónulýsingum. Janúarheftið er í boði Myndmáls, en fyrirtækið gefur út myndrænt orðasafn fyrir leikskóla- og grunnskólabörn til að læra íslensku með myndum, hljóði og texta. Myndmál nýtist einnig vel sem kennsluumhverfi fyrir fólk af erlendum uppruna, börn með þroskahamlanir og einstaklinga með einhverfu. Í boði er frír prufuaðgangur að 4 flokkum en orðasafnið í heild inniheldur yfir 1300 mismunandi myndir og hljóð.

Febrúarlestur

Febrúar er á margan hátt skemmtilegur mánuður og mikið um að vera. Daginn fer að lengja en þó enn kósí að leggjast undir teppi með góða bók í rökkrinu. Það er gaman að geta þess að fyrsti laugardagur í febrúar ár hvert er hinn alþjóðlegi „farðu með barnið þitt á bókasafnið“ dagurinn. Lestrarheftið tengist því svolítið en þar má finna skemmtilegt verkefni um bókaflokka auk þess sem heftið inniheldur sögutening, 100 algeng orð, sögupersónarýni og verkefni um samsett orð. Það er SAFT sem styrkir útgáfuna að þessu sinni, en SAFT er vakningarátak um örugga og jákvæða tölvu- og nýmiðlanotkun barna og unglinga á Íslandi. Á heimasíðu þeirra má finna margvísleg heilræði og leiðbeiningar til foreldra og skólastarfsmanna.

 

Marslestur

Þá er marsmánuður runninn upp og vorið á næsta leiti. Mars er skemmtilegur fyrir margar sakir en ekki síst vegna þeirra lestrartengdu merkisdaga sem einkenna hann. Sem dæmi er 2. mars fæðingardagur barnabókarithöfundarins Dr. Seuss og haldinn honum til heiðurs,  21. mars er alþjóðlegur dagur ljóðsins og 25. mars er tileinkaður J.R.R. Tolkien. Pakkinn að þessu sinni inniheldur meðal annars sendibréf til sögupersónu, orðakubb, hraðapróf og orðatiltæki tengdum bókum og lestri. Lestrarheftið er í boði Merkilega klúbbsins sem starfræktur er af Frímerkjasölu Póstins. Merkilegi klúbburinn er mjög áhugaverður félagsskapur barna sem vilja safna, fræðast og skipta á frímerkjum. Leynist frímerkjasafnari í þínum bekk?