Malli er lítill mörgæsastrákur sem býr á Suðurpólnum. Hann er fróðleiksfús og ætlar sér að læra margt áður en hann verður stærri og byrjar í skóla. Smelltu á myndirnar til að nálgast efnið með Malla mörgæs.
Malli mörgæs lærir að telja
Malli notar snjóbolta til að læra að telja. Prentaðu skjalið út og plastaðu. Leikmotturnar er hægt að nota á ýmsan hátt s.s. að leira kúlur til að leggja yfir boltana og flytja þær svo yfir í reitina, eða gera kross með glærupenna í jafnmarga reiti og boltarnir eru. Hægt er að nota aðra hluti en leir s.s. spilakalla eða tappa.
Markmið:
- Læra að telja upp í 10
- Þjálfa fínhreyfingar með leir
- Nota rétt grip þegar skrifað er
- Læra í gegnum leik