Skimanir í grunnskóla

1. bekkur

  • Tove Krogh – þroskapróf sem fer fram í gegnum teikniverkefni. Nemendur teikna myndir eftir fyrirmælum og fylgst er með hvernig þau bera sig að. Könnuð er fínhreyfifærni, skammtímaminni, hugtakaþekkning, sjálfstæð vinnubrögð og hvernig gengur að fara eftir fyrirmælum.
  • Læsi – lestrarskimun sem ætlað er að finna nemendur sem eru í áhættuhópi vegna lestrarerfiðleika og veita kennurum upplýsingar til skipulagningar náms þeirra.
  • Hljóðfærni – greiningarpróf fyrir nemendur teljast í áhættuhópi vegna lesblindu.
  • Boehm  – skimun sem reyndir á hugtakaskilning 6 ára barna svo sem á hugtökum eins og uppi, niðri, á undan og eftir.

2. bekkur

  • Læsi – lestrarskimun sem ætlað er að finna nemendur sem eru í áhættuhópi vegna lestrarerfiðleika og veita kennurum upplýsingar til skipulagningar náms þeirra.

3. bekkur

4. bekkur

  • Samræmd könnunarpróf í stærðfræði og íslensku

5. bekkur

6. bekkur

  • Skólapúlsinn – fjölþætt nemendakönnun lögð fyrir nemendur í 6. – 10. bekk, þar sem meðal annars er verið að skoða ánægju í mismunandi námsgreinum, trú á eigin námsgetu, þrautseigju, sjálfsáliti, vellíðan, einelti, matarræði, aga og samskiptum innan skólasamfélagsins.

7. bekkur

8. bekkur

  • Greinandi ritmálspróf (GRP 14H) – skimað er eftir erfiðleikum við ritmálið hjá 14 ára nemendum. Markmið að gefa kennurum færi á að bregðast við með viðeigandi kennslu. Prófinu fylgir jafnframt spurningalisti fyrir aðstandendur og kennara.
  • Skólapúlsinn – fjölþætt nemendakönnun lögð fyrir nemendur í 6. – 10. bekk, þar sem meðal annars er verið að skoða ánægju í mismunandi námsgreinum, trú á eigin námsgetu, þrautseigju, sjálfsáliti, vellíðan, einelti, matarræði, aga og samskiptum innan skólasamfélagsins.

9. bekkur

10. bekkur

  • Samræmd könnunarpróf í stærðfræði og íslensku
  • Skólapúlsinn – fjölþætt nemendakönnun lögð fyrir nemendur í 6. – 10. bekk, þar sem meðal annars er verið að skoða ánægju í mismunandi námsgreinum, trú á eigin námsgetu, þrautseigju, sjálfsáliti, vellíðan, einelti, matarræði, aga og samskiptum innan skólasamfélagsins.

Aðrar skimanir

Tengslakannanir

Útprentanlegt efni

Skólapúlsinn, upplýsingabæklingur

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt.