3. desember – Góður vilji


Download66
Stock
File Size1.15 MB
Create Date28. desember, 2025
3. desember - Góður vilji PDF

3. desember

Svo mikið er víst að jólagleðin fæst ekki fyrir peninga. Sagan fjallar um unga fatlaða saumastúlku sem vill gleðja alla í kringum sig en hefur ekki bolmagn til að kaupa jólagjafir. Hún býr í sama húsi og barnmörg ekkja en þrátt fyrir auraleysi nær hún að gefa henni hina fullkomnu jólagjöf.

Á þessari slóð er hægt að nálgast söguna: http://hlusta.is/flokkun/jolasogur/efni/godur_vilji_gudrun_larusdottir.htm

Í meðfylgjandi PDF skjali eru fjögur verkefni: Beinar efnisspurningar, hlustunargátlisti, völundarhús og ritunarverkefni. Orðin í hlustunargátlistanum koma fyrir í réttri röð en mislangt á milli þeirra. Fyrst koma orðin í fremsta dálkinum, þá miðdálkinum og loks þeim síðasta líkt og örvarnar sýna. Verkefnin er hægt að sjá hér fyrir neðan en til að nálgast PDF eintak í réttri prentupplausn þarf að velja skjalið 3. desember - Góður vilji PDF.

godur_vilji-01 godur_vilji-04godur_vilji-02 godur_vilji-03 Myndaskrá: