| Download | 21 |
| Stock | ∞ |
| File Size | 1.02 MB |
| Create Date | 28. desember, 2025 |
| 16. desember - Tréklossar Úlfars litla PDF | |
Úlfar litli er munaðarlaus og býr hjá frænku sinni. Sú er ekki að dekra við hann og fer beinlínis illa með hann. Úlfar gengur í skóla með börnum frá efnameiri fjölskyldum en bæði samnemendur hans og kennarinn leggja hann í einelti. Samt sem áður er Úlfar góðhjartaður drengur og má ekkert aumt sjá, fyrir það uppsker hann á endanum. Þessi saga er fyrir alla aldurshópa.
Hér er hægt að nálgast söguna: http://hlusta.is/flokkun/jolasogur/efni/treklossar_ulfars_litla.htm
Í meðfylgjandi PDF skjali eru fjögur verkefni: Stafsetning/orðflokkagreining/stafrófsröð, óútfyllt orðasúpa, skrafl og teikniverkefni. Verkefnin er hægt að sjá hér fyrir neðan en til að nálgast PDF eintak í hæfilegri prentupplausn þarf að velja skjalið 16. desember - Tréklossar Úlfars litla PDF.
Myndaskrá:
Mistilteinn: images.clipartpanda.com



