| Download | 16 |
| Stock | ∞ |
| File Size | 1.02 MB |
| Create Date | 28. desember, 2025 |
| 13. desember - Jólaklukkurnar PDF | |
Jólaklukkurnar eru ein af jólasögum Charles Dickens. Sagan er nokkuð löng og hentar því betur í vinnu með eldri nemendum. Verkefnavalið tekur mið af því. Á Skriftarrenningana skrá nemendur 13 nafnorð, 13 sagnorð og 13 lýsingarorð á meðan hlustað er. Renningarnir eru svo notaðir í setningaverkefnið.
Hér er hægt að nálgast söguna: http://hlusta.is/flokkun/jolasogur/efni/jolaklukkurnar_charles_dickens.htm
Í meðfylgjandi PDF skjali eru fjögur verkefni: Sögudómur, orðakubbur, Skriftarrenningar og setningagerð. Verkefnin er hægt að sjá hér fyrir neðan en til að nálgast PDF eintak í hæfilegri prentupplausn þarf að velja skjalið 13. desember - Jólaklukkurnar PDF.
Myndaskrá:
Jólaklukkur: wpclipart.com



