15. desember – Nóttin helga


Download20
Stock
File Size1.21 MB
Create Date28. desember, 2025
15. desember - Nóttin helga PDF

Nóttin helga fjallar um þátt systkinanna Tyrsu og Elís í að útvega Jósef og Maríu húsaskjól kvöldið sem Jesú fæðist. Faðir þeirra, gistihúsaeigandinn, hafði úthýst þeim vegna nísku og það þótti börnunum miður. Þau vísuðu verðandi foreldrum í fjárhús föður þeirra og aðstoðuðu þau sem mest þau máttu að undirbúa koma barnsins. Nóttin helga er falleg saga um góðverk og hjálpsemi, og hentar öllum aldurshópum.

Hér er hægt að nálgast söguna: http://hlusta.is/flokkun/jolasogur/efni/nottin_helga_zacharias_topelius.htm

Í meðfylgjandi PDF skjali eru fjögur verkefni: Úrdráttur og teikning, orðasúpa, réttritunarkönnun (Orð til upplestrar: Nóttin, stjarnan, heimurinn, þúsund, spámenn, leysa, skrásetja, hellir, fátækir, bjarmi, vitringur, gripahús, jata, orðrómur, börnin, laun, hunangskaka, gistihús, hálmur og frelsari.) og völundarhús. Verkefnin er hægt að sjá hér fyrir neðan en til að nálgast PDF eintak í hæfilegri prentupplausn þarf að velja skjalið 15. desember - Nóttin helga PDF.

Nóttin helga_verkefn_1 Nóttin_helga_verkefni_2 Nóttin_helga_verkefni_3 Nóttin_helga_verkefni_4

 

 

 

 

 

Myndaskrá: