| Download | 58 |
| Stock | ∞ |
| File Size | 1.84 MB |
| Create Date | 28. desember, 2025 |
| 5. desember - Litla stúlkan með eldspýturnar PDF | |
Litla stúlkan með eldspýturnar
Sagan um litlu stúlkuna með eldspýturnar eftir H.C. Andersen fjallar um sorgleg örlög fátækrar stúlku sem verður úti á gamlárskvöldi. Köld og svöng kúrir hún í húshorni og þorir ekki heim þar sem hún hefur ekki náð að selja eldspýturnar. Hún kveikir á einni og einni til að ylja sér uns amma hennar birtist skyndilega. Sagan á erindi við alla aldurshópa og þar sem 5. desember 2015 ber upp á laugardag er tilvalið að senda verkefnablöð heim í töskupósti og hvetja heimilin til samstarfs.
Hér er hægt að nálgast söguna: http://hlusta.is/flokkun/jolasogur/efni/litla_stulkan_med_eldspyturnar_hc_andersen.htm
Í meðfylgjandi PDF skjali eru fjögur verkefni: Efnisspurningar, orðasúpa, sögukort og krossorðaglíma. Verkefnin er hægt að sjá hér fyrir neðan en til að nálgast PDF eintak í hæfilegri prentupplausn þarf að velja skjalið 5. desember - Litla stúlkan með eldspýturnar PDF.
Myndaskrá:
Litla stúlkan með eldspýturnar: http://orig09.deviantart.net



