| Download | 66 |
| Stock | ∞ |
| File Size | 1.15 MB |
| Create Date | 28. desember, 2025 |
| 3. desember - Góður vilji PDF | |
3. desember
Svo mikið er víst að jólagleðin fæst ekki fyrir peninga. Sagan fjallar um unga fatlaða saumastúlku sem vill gleðja alla í kringum sig en hefur ekki bolmagn til að kaupa jólagjafir. Hún býr í sama húsi og barnmörg ekkja en þrátt fyrir auraleysi nær hún að gefa henni hina fullkomnu jólagjöf.
Á þessari slóð er hægt að nálgast söguna: http://hlusta.is/flokkun/jolasogur/efni/godur_vilji_gudrun_larusdottir.htm
Í meðfylgjandi PDF skjali eru fjögur verkefni: Beinar efnisspurningar, hlustunargátlisti, völundarhús og ritunarverkefni. Orðin í hlustunargátlistanum koma fyrir í réttri röð en mislangt á milli þeirra. Fyrst koma orðin í fremsta dálkinum, þá miðdálkinum og loks þeim síðasta líkt og örvarnar sýna. Verkefnin er hægt að sjá hér fyrir neðan en til að nálgast PDF eintak í réttri prentupplausn þarf að velja skjalið 3. desember - Góður vilji PDF.

Myndaskrá:
- Skuggamynd af börnum sem leiðast: www.clker.com
- Skuggamynd af jólakerti: s-media-cache-ak0.pinimg.com