| Download | 85 |
| Stock | ∞ |
| File Size | 1.12 MB |
| Create Date | 28. desember, 2025 |
| 2. desember - Bryddir skór PDF | |
2. desember
Bryddir skór fjallar um ungan farkennara sem staddur er á bæ að mennta syni húsbóndans. Allir hrífast af þessum unga manni og meðal annars efnuð eldri piparmey og kornung vinnukona. Sagan er heldur í þyngri kantinum hvaða orðaforða varðar en gefur að sama skapi mörg tækifæri til að ræða hvað tungumálið hefur breyst og útvikka skilning nemenda alveg niður í 1. bekk. Verkefnin eru í takt við það en yngstu bekkirnir geta þó teiknað mynd af baðhúsinu, rætt um orðin og orðatiltækin, og notað orð af eigin vali í binógið. Hér má nálgast söguna: http://hlusta.is/flokkun/jolasogur/efni/bryddir_skor_jon_trausti.htm
Í meðfylgjandi PDF skjali eru fjögur verkefni: Beinar spurningar með orðum og orðatiltækjum, óútfyllt orðasúpa, óútfyllt bingó og Skriftarrenningar til að nota í orðasúpu og bingó. Verkefnin er hægt að sjá hér fyrir neðan en til að nálgast PDF eintak í réttri prentupplausn þarf að velja skjalið 2. desember - Bryddir skór PDF.



